Statusinn á Sindra

Konan: Ekki kominn í leitirnar. Börn: Það þarf víst konu líka til að búa þau til. En á þó eitt barn, hún er styrtarbarn í afríku. Hún heitir Jayja Prada og er um 15 ára. Íbúð: íleigu, býr í foreldra húsum. Dauðir hlutir: moturhjól og engin bíl (í augnarblikinu). Græjur: Sony dsr 10, Powerbook 15", Destop og 1 tíndur góður 3fótur.
Klipping: þar að fara í klippingu en er með strýpur í hári! Menntun: Rétt hinu meginn við hæðinna.

Afþreifinga linkar

Heima símanúmerið mitt

14. maí 2008 klukkan 13:34
Sá þessa auglýsingu og um að gera að hafa hana hér ef fólk ætlar að hringja í mig þá þarf það að muna þetta lag til að geta hringt í mig.



Nýtt blogg

13. febrúar 2008 klukkan 20:41
Já til hamengju þú sem hefur verið að fylgjast með hinni dauðu síðu en hér er eitt stiki BLOGG.

Annað var það ekki.

He´s back - I think!

10. mars 2007 klukkan 03:02
Hver kom hingað fyrstur!
Já fyrst hann er byrjaður að blogga maðurinn þá hlýtur að vera tvennt í gangi!
Annað hvort er maðurinn að vera ástfanginn (aftur) eða hann er byrjaður á næturvöktum (aftur). Ég myndi segja að það væri þetta seinna þar sem ég er nú hann.

10 fyrstu fá verðlaun
Ég hef ekki verið í blogg stuði nema frá því síðast og hef því ekki bloggað en hef verið að kíkja hingað nýverið og skoða hvað er að gerast og það er alls ekki neitt og ég held að það sé allir löngu búnir að gefast upp á mér en ekki hann SINDRI kallinn, hann heldur við sýna og þeir sem koma hingað innan tíu daga frá því ég blogga munu fá óvæntan glaðining en þú þarft að blogga comment hérna fyrir neðan og eftir 10 daga mundu fá að vita hver þessi glaðingur er, en ég er ekkert að djókast með það að ég mun verðlauna þér fyrir að hafa kíkt á mig og commentað.

(F)Réttir

Hér er lítið af frétta hjá mér og þó vá...
Ég hef ekki bloggað frá 20 Nóv og það á síðasta ári þannig að það hlýtur að vera heilmikið af frétta af mér sem það er.
EN ég hef engan áhuga að skrifa eithvað fyrir sjálfan mig svo ég vil fyrst fá að vita hvort að það séu í rauninni einhver þarna úti sem er að fylgjast með mér og síðunni góðu, þá kem ég til með að fara skrifa eithvað FEITT sem er varið í...

Samt smá!
Vinnan hefur átt mig 87 1/4% og svo hef ég deild restinni með vinni mínum, fjölskyldunni og af sjálfsögðu öllum þessum stelpum sem eru vaðandi í manni (hehe djók).
Mér líður rosalega vel í vinnuni og hef kynnst allveg meiriháttar vinnufélögum og fjölskyldu þeirra (þó reyndar aðeins eins vinnufélga míns, sem eru bæ ðe vei alveg frábær).

Bragi og co

Bragi vinur á 100 ára afmæli með konuni sinni núna 17 þessa mánaðar svo mér er farið að hlakka gríðalega til og ég fæ þann heiður að taka allan ljósmynda gírinn frá vinimínum og frænda Árna og ætla að taka nokkrar flottar myndir fyrir hann Braga vin minn OG að sjálfsögðu konuna hans, hún er alveg frábær líka. Uff, þetta er alveg yndisleg fjölskylda.
Búin að reyndar hitta eina dóttur þeirra og hún er rosalega, uff, já hún dregur mann á dansnámskeið, út að borða, pool, bíó, EN ekki enþá hefur hún boðið mér út á ísrúnt í nýja BMW 328i hennar, ætli ég sé ekki nægilega góður til að fara inn í bílinn hennar, já þessar týpur, kannast alveg við þær. EN ég hef hins vegar boðið henni á ísrúnt á bílnum mínum. Hún (Hafdýs) hefur tekið lagið of bókstaflega þar sem er sungið "Hún hleypir honum ekki upp í bíl með hverjum sem er".
En þau eru flott hjóninn. Það er þema hjá þeim í afmælinu, HATTAR, hvussu miklir snillingar eru þetta, eins sem vantar hjá þeim að það verða pönnukökkur á snúru hjá þeim sem allir ná sér í af snúrinni, Bragi ég skora á þig að gera þetta, ÉG veit að konan þín kemur ekki til með að líka það en segðu þá henn bara að þetta komi frá mér og þá verði þetta í góðu lagi ;).

Svo er það í Júní
Að stóri dagurinn gerist. Sem hefði kannski átt að vera búið að löngu síðan. Það er að hann Sindri litli segir STOPP. Já hann ætlar að hlaupast á brott af heiman og fara að búa í sinni eigin íbúð. Ég veit að sumir hafa ekki trú á mér og það hef ég "stundum" ekki haft heldur en ég ætla að byðja þig um bón. Stattu með mér í þessu!!! Berjumst saman, ég og þú. Já, ég verð að gera þetta, ekki bara fyrir mig heldur líka fyrir þig... svo ég geti boðið þér heima og heft háfaða, spilað, djammað, boðið stelpu í heimsókn án þess að foreldar mínir (þó aðeins mamma) haldi að ég sé kominn á fast, labbað nakinn um án þess að fá koment á það (kannski er ég komin over the line!) og þó.
Eldhúsið á að fara, nýtt inn, vonandi að barketið fjúki, nýtt inn ásamt flísum. Áður en ég veit af þarf ég að leigja hana aftur út því ég á engan pening eftir. heheh.

Jólinn
Já þakka þér fyrir þau voru bara alveg ágæt.

Noregurinn og rauðir dreiglar
Kom reyndar frá útlandinu um daginn og var að klippa heimildarmynd fyrir hann Héðinn vin minn en ég verð að segja ykkur frá hvernig var tekið á móti mér á stadvanger flugvelinum og svo þegar ég er búin að læra að setja ljósmyndir inn á bloggið þá kemur myndinn.
Þegar ég er að koma niður rullustigan þegar ég rétt aður en maður kemur að almenninninum þá sé ég rauðan dregil fyrir á móti rúllustiganum, á endanum er norsk stelpa, uppstrípuð norska þjóðbúninginum með blómvönd, mótökunefnd við hlið hennar, hún kemur tekur á móti mér þegar ég stíg á dregilinn, færir mér blóminn og kyssir mig. Mótökunefndin tekur á móti mér og beinir ljósmynda frá um leið á meðan mér er stýrt í átt að bílnum, takan tekin fyrir mig og brunað (næstum því í lögreglufyld) í átt að prífvat gistiheimili.

Góða stundir.

Strong Nuts

20. nóvember 2006 klukkan 02:12
Jæja.
Nú hefur þessi Sindri ekki bloggað frá því 1926 og það í haust mánuði.
Nú ástæðan fyrir upphaf þessar bloggsíðar var sú að þegar ég vann á næturvöktum hjá Securitas þá fann maður sér eithvað til dundus og því vaknaði þessi síða upp til lífs og blómstraði svona rosalega og má segja að oft hafi verið bloggað 2svar sama dag ef ekki 3svar.

Kæri gestabloggari.
Nú er öldinn önnur og veröldinn breitari, eftir að ég hætti að blogga þá hef ég hætt hjá Securitas og farið í sumarfrí um leið og IKEA réðu mig til sín og meðal annars að vera hluthafandi að því að byggja upp öryggisdeild í IKEA og sjá um hana ásamt örðum kolega. Þá hlýtur maður að smyrja sig! Hefur maður tíma fyrir svona blogg og "tímaeyðslu". Ég veit ekki en allavega veit ég það fyrir víst að ég hef ekki tíma fyrir þetta á vinnutíma og ekki fer ég að eyða tíma í blogg í fríi mínu þar sem ég á líf fyrir utan vinnu, hver veit þegar að hlutirnir fara ganga hægar fyrir sig í vinnuni að þá farir maður að huga að einhverju bloggi eða einhverju álíka, með örðu auganu á myndavélarnar ef bara ekki báðum því maður vill nú vinna vinnuna sína vel ekki satt!

Ég vil mæla með því að ef þú hefur einhvern áhuga að fá fréttir að Sindra kallinum þá mæli ég með að þú hættir að skoða bloggið og hringir í stað þess í hann og eigir ALVÖRU vinasamband við hann.

Nú þangað til að ég muni gefa mér aftur tíma í bloggsíðuna, lifðu heil/l.

En hérna meginn við bloggið

29. október 2006 klukkan 17:24
Hæps.

Komið langt síðan að ég settist eithvað niður og skrifaði svo ég áhvað að kíkja á nýjustu skilaboð á síðinni og skrifa þér eithvað. Annars er ég bara sáttari við það að fólk hringi frekkar í mig og láti heyra í sér í stað þess að skrifa eithvað hér niður en enga síður er alltaf gaman að sjá eithvað comment hérna sem heldur manni áfram að skrifa til þín.

Nóg hefur verið að gera hjá mér. 1 stk. IKEA verslun opnuð sem gékk bara mjög vel og var sölutölurnar slegnar dag frá degi og menn bara almennt gríðalega sáttir. Hefur verið nóg að gera síðan en sem betur fer á ég pínulítið frí þannig að ég er ekkert að dissa mikið vinni mína og kunningja. Held ég allavegana.

Strax eftir Noregs, eða Svíðþjóðar ferðina frægu hefur margt gerst, og það helsta að Vísa fyrirtækið sem var besti vinur minn úti er ekki lengur orðinn vinur minn. Nú er komið að skulda dögum þannig að ég mæli ekki með að maður noti kortið innan skynsamlegra marka.

Svo í Amsterdam hitti ég Varða félga minn í kvikmyndageiranum sem fékk að nota hæfileika mína á sálinni sem var að sjálfsögðu sáttur við manninn. Svo í kvöld er hann að fá að njóta mín aftur á cam, griðalega gaman. Eða ég held það.

Annars hitti ég Árna frænda sem lét mig fá um 200GB af nýju efni sem er stutt af fangelsismálastofunun íslands. Þannig að hér líða menn mjög vel.

Hef verið að skoða kvenkynsmarkaðinn og enþá sem er er ekkert að gerast í þeim markaði en sem komið er.;)

Látum þetta vera gott í billi, og svo ég vitna í hann Hemma vin minn.
,,Verið þið bless, ekkert stress."

Heilsan.

Ég er enþá hérna

20. október 2006 klukkan 23:09
hæ er í vinnuni, mikið að gera.

skrifa ykkur seinna, þegar rógast! ;)

Iceland Here I Come

28. september 2006 klukkan 20:27

Er núna að koma heim eftir viku ferð hérna í svíjaríki. Búið að vera mjög gaman og eins og sagt hefur verið áður þá er Anna og Sigmund búin að halda rosalega vel utan um okkur og við höfum haft það rosalega gott.
Ýmislegt hefur verið gert og sumir hafa sleigið betur út í bænum en aðrir en meira um það síðar.

En mun koma heim í nótt og þá getur þú heyrt í manninum til að kasta á hann saknaðar kveðju.

kv.Sindri

Hey Alihubba

25. september 2006 klukkan 00:52
Nýjustu fréttir af Bambusinnum

Er núna í svíðþjóðinni og er að gera það gott. Sigmund og Anna Rósa koma fram við okkur eins og kónga og drottingu og er buið að vera rosa gaman. Búið að kíkja á allmargar samkomur, syngja á SÆNSKU, tala á SÆNSKU, og náturlega fara í mollið, annað afrek og það er að hjóla í gegnum sænskan skóg, skoðað stokhólm og borðað súsí, og auðvitað var sænska biblían keypt.

Heilsan til allra minna men og kvinna á klakkanum. ps. búið að vera roalega heitt hérna og maður er bara að stikna hér að hausti til.

kv. Bambusinn í Noregi ;)

Vinna og aftur út

21. september 2006 klukkan 04:20
Núna er ég búin að vera vinna á fullu hjá IKEA og komið að því að fara aftur út eftir 6 daga dvöl hér heima, að þessu sinni er það Svíþjóð sem fær að njóta nærveru minnar, hver veit nema að ég komi til með að blogga til ykkar þaðan.

ps. annars var barasta fínasta í AMsterDam...

Home Swet home

15. september 2006 klukkan 04:01
Jæja minn maður kominn heim.
Uff hvað það er gott og vá hvað ég var farinn að sakna isl.vatnsins.
Vinna á morgun hjá sálinni og ætli maður kíkji ekki svo aðeins í ikea um helgina.
Nenni ekki að bloggast meira.
Beat for you ;)

Kv.Ég

Könnun

Eiga litlu jólinn að vera stór eða lítil?

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Viska

Kona giftist manni og býst við því að hann muni breytast,
en hann breytist ekki.
Karlmaður giftist konu og býst við að hún breytist ekki,
en hún breytist.

118

Ég hringi og það er svarað "Já 118 Góða kveldið" Ég segi "Já komið þér Sælar Hannes hér, segðu mér Guðmundur Agnarsson með Y" Ég heyri að hún er að pikka inn nafnið og segir svo "Guðmundur Agnarsson segir þú" Ég staðfesti það og bendi aftur á það að nafnið er með Y" "Já" segir hún og ég heyri að hún fer að pikka eithvað meira á hnappaborðið, heyri svo að það kemur pínulítið fátt á hana og segir svo við mig "Með Y" Ég staðfesti það með mikili sanfæringar röddu. Svo heldur hún áfram að pikka á borðið. Svo segi ég við hana "Hey ég er að fíblast í þér og svo fórum við svo að sjálfsögðu að skelli hlægja ;)

Hvar er afgreiðslan?

Maður labbar inn búð og kemur að starfsmanni sem er á bakk við borð. Maðurinn spyr starfsmanninn. "Segðu mér!, hvar er afgreiðslan" Starfsmaðurinn segir við manninn. "Hún er hér!" Starfsmaðurinn teigir sig yfir borðið og byrjar að rugla í hárinu á manninum. Maðurinn bakkar út frá borðinu og segir "Hvað ertu eiginlega að gera?" og svarar starfsmaðurinn. "Þú ert í AF-GREIÐLUNI"

þessi brandari var samin af Sindra kallinum :D

Brandari ársins

Maður labbar inn á bar og segir "Hver málaði hestinn minn rauðann!?" Þá stendur STÓR og stæðilegur maður upp og segir (með dúpri röddu) "Það var ÉG" þá segir hinn maðurinn (með skrækri röddu) "Ég ætliði bara að segja þér að hann væri orðinn þurr!"

Leikur dagsins

Leit